Litfagur og skemmtilega myndskreyttur spilastokkur með glaðlegum myndum af íslensku dýrunum. Mannaspilin eru síðan við Íslendingar sjálfir enda erum við öll kóngar og drottningar og sumir jafnvel gosar. Sortirnar hafa hvern sinn einkennislit sem er mjög gott fyrir byrjendur.
Spilastokkurinn er gataður í gegn svo hægt sé að geyma spilin á sérhönnuðum trékubbi sem fylgir með en þannig haldast spilin alltaf á sínum stað. Einnig fylgir bæklingur á 3 tungumálum sem segir frá sérstöðu íslenskra dýra á heimsvísu. Þetta eru einstök spil sem bæði eru nýtast til náms og leiks.
Vörukynning
Bakki úr endurunnu bókarefni
Ég handgeri hvern bakka endurunnu bóka- og tímaritarefni og spónarblöðum. Hver og einn er sjálfstætt listaverk sem bæði er hægt að henga uppá vegg eða nota á borð = borðleggjandi og algjörlega í anda endurvinnslu og mínimalísks lífstíls. Bakkarnir eru frábærir á kaffiborðið undir ýmislegt bakkelsi. Til verndar yfirborðinu eru þeir tvílakkaðir með vistvænu lakki. Má þrífa þá með rökum klút.
Engir tveir bakkar eru eins! - svo ef þú sérð einn sem þér líst á - ekki hika - því hann gæti farið fljótt!
Um mig
Sigrún Einars er einnar konu fyrirtæki og allar vörur á þessari vefsíðu eru mín hönnun, eigin smíði og framleiðsla. Prentuðu vörurnar eru með mínum myndskreytingum. Ég legg mikla áherslu á endurvinnslu og sjálfbæra hönnun og handverk. Endilega smelltu og lestu… hvernig í ósköpunum ég kunni þetta allt!
Fjölmiðlar og sýningar
Ég hef starfað við hönnun og því tengdu í rúm 30 ár. Hér er hægt að kíkja á ýmis viðtöl í gegnum árin. Taktu þér tíma í lesturinn 🙂